Convince your Boss PDF | Sponsors

Fréttatilkynningar 2011

Fréttatilkynning: You Are In Control

Reykjavík, 28. júlí 2011

You Are In Control (YAIC) haldin í fimmta sinn

FYRSTU FYRIRLESARARNIR KYNNTIR

MIÐASALA HAFIN, SÉRSTAKT TILBOÐ TIL 5. SEPTEMBER

SÉRSTAKT YAIC & ICELAND AIRWAVES PAKKATILBOÐ

SKIPULEGGJENDUR YAIC 2011

________________________________________________________________

Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control (YAIC) verður haldin í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík dagana 10. – 12. október í ár. Þetta er í fimmta sinn sem ráðstefnan er haldin en um er að ræða framsækna ráðstefnu og vinnusmiðjur þar sem ljósi er varpað á ný viðskiptamódel í skapandi greinum á tímum stafrænnar byltingar. Tilgangurinn með YAIC er að koma á alþjóðlegu tengslaneti og skapa þekkingarbanka á Íslandi um stafræn viðskipti og markaðssetningu í skapandi greinum. Markmiðið er að ýta undir aukna samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í þessum geira atvinnulífsins á alþjóðlegum vettvangi.

Á YAIC kemur saman fagfólk úr öllum skapandi greinum víðsvegar að úr heiminum en á meðal fyrirlesara og gesta sem sótt hafa ráðstefnuna má nefna Imogen Heap (UK), tónlistarkonu og Grammy verðlaunahafa, Ian Livingstone (UK), forstjóra Eidos og stofnanda Games Workshop og Paul Bennett stofnanda IDEO

_______________________________________________________

Fyrstu fyrirlesararnir kynntir

Fyrstu fyrirlesarar og erlendir gestir á YAIC 2011 hafa þegar staðfest komu sína en helstu umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru: þverfaglegt samstarf innnan skapandi greina, stafræn markaðssetning og höfundaréttur.

Iain Forsyth og Jane Pollard hafa starfað saman sem myndlistarmenn síðan þau kynntust fyrst við nám í Goldsmiths skólanum árið 1995. Verk þeirra hafa verið sýnd víða um heim og eru nú í eigu margra þekktra listasafna, m.a. Tate safnsins í London. Verk þeirra skarast gjarnan á við tónlist og hafa falið í sér samstarf við ýmsa tónlistarmenn svo sem J. Spaceman (Spiritualized), Plan B og nú nýlega Scanner sem bjó til tónlist við innsetningu þeirra á torgi í Toronto. Árið 2007 bauðst Iain og Jane að búa til nýtt verk fyrir tónlistarhátíð Jarvis Cocker söngvara Pulp, Meltdown, og eftir að þeim bauðst að búa til sitt fyrsta tónlistarmyndband fyrir Nick Cave árið 2008 hafa þau í síauknum mæli fengist við að leikstýra og búa til kynningarefni fyrir tónlistarfólk, m.a. Gil Scott-Heron og hljómsveitirnar Tindersticks og Fanfarlo. Síðustu 10 árin hafa þau bæði unnið með þekktustu sjálfstæðu útgáfufyrirtækjum Bretlands við að móta stefnu þeirra og nálgun á stafrænni og skapandi markaðssetningu.

Jane Pollard (UK). Árið 2002 gekk Jane til liðs við Beggars Group, stærsta samansafn sjálfstæðra útgáfufyrirtækja í Bretlandi, til að sinna starfi vefþróunarstjóra og þróa stefnu fyrirtækisins í vefmálum og stafrænni markaðssetningu. Árið 2005 varð hún yfirmaður Stefnumótunar (Head of Strategy) og sá hún um að þróa skapandi markaðssetningu og kynningu á tónlistarfólki útgáfufyrirtækja Beggars Group (XL Recordings, 4AD, Rough Trade og Matador Records). Jane hefur unnið með fjölmörgum þekktum tónlistarmönnum svo sem Radiohead, Pixies, The White Stripes, The National, Adele og Scott Walker. Hún hefur leitt fjöldamargar kynningarherferðir á netinu og unnið til fimm Digital Music verðlauna og átt stóran þátt í því að endurmóta stefnu Beggars Group á netinu.

Iain Forsyth (UK). Eftir 10 ár sem yfirmaður vefmála hjá útgáfufyrirtækinu Mute starfar Iain nú sem sjálfstæður ráðgjafi innan tónlistargeirans. Hann gekk til liðs við Mute árið 2001 og starfaði þar á meðan fyrirtækið heyrði undir EMI og allt þangað til það öðlaðist sjálfstæði aftur fyrir stuttu síðan. Á þessu tímabili starfaði Iain náið með fjölmörgu tónlistarfólki, t.d. Depeche Mode, Goldfrapp, Moby, Erasure og Richard Hawley. Árið 2004 stofnaði hann fyrirtækið Live Here Now sem er dreifingarfyrirtæki fyrir tónleikaupptökur sem nú heyrir undir Abbey Road hljóðverið. Sem ráðgjafi hefur Iain haldið áfram að starfa með mörgu af því tónlistarfólki sem gefur út hjá Mute.

Lesa má nánar um Iain og Jane á heimasíðu þeirra.

 

Ralph Simon (USA) er framkvæmdastjóri Mobilium Advisory Group og fyrrum stofnandi og stjórnarformaður Mobile Entertainment Forum. Hann er álitinn einn af höfundum farsímaafþreyingariðnaðarins en árið 1997 spáði hann fyrir um það að farsímar yrðu í framtíðinni ómissandi tæki þegar kæmi að neyslu tónlistar og annarrar afþreyingar sem og til að viðhalda félagslegu tengslaneti. Þessi sýn hans varð til þess að hann stofnaði fyrsta hringitónafyrirtækið í heiminum. Í yfir 15 ár hefur Ralph verið frumkvöðull í farsímageiranum og átt mikinn þátt í vexti hans og því veigamikla hlutverki sem farsíminn gegnir í dag.

 

Mathias Klang (SE) leiðir Creative Commons í Svíþjóð og starfar sem fræðimaður og fyrirlesari við Háskólann í Gautaborg. Rannsóknir hans snúast um löglega upplýsingatækni (legal informatics) með sérstaka áherslu á höfundarétt, tjáningu á veraldarvefnum, stafræn réttindi og reglugerðir. Þessa dagana fæst hann við rannsóknir á þessum sviðum út frá félagsmiðlum (social media). Hann heldur reglulega fyrirlestra og hefur gefið út nokkrar greinar. Mathias bloggar á síðunni digital-rights.net og tístir undir nafninu @klang67.

 

Staci Slater (USA) er forstjóri Talent House Inc. sem hún hefur rekið í 24 ár en hún kemur til landsins til að stýra vinnustofu um leyfismál tónlistar í kvikmyndum og sjónvarpi. Upphaflega starfaði Talent House einvörðungu á sviði umboðsmennsku og kynningarmála og átti þátt í því að koma mörgum hljómsveitum á framfæri, til að mynda The presidents of the United States of America, Concrete Blonde, Powerman 5000, April March 7 Year Bitch, The Gits og fleiri. Eftir 13 ár í þeim geira var kominn tími áherslubreytingar í starfsemi fyrirtækisins með breyttum aðstæðum í tónlistariðnaðinum en þá færðist starfsemin smá saman yfir í leyfisveitingar fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Talent House er með skrifstofur í Los Angeles og Toronto og sér um leyfis- og rétthafamál fyrir mörg leiðandi sjálfstæð útgáfufyrirtæki, listamenn, umboðsmenn og aðra rétthafa.

 

Miðasala hafin, sérstakt tilboð til 5. september

Miðasala á YAIC 2011 er hafin með sérstöku tilboði sem stendur til 5. september. Miðaverð er 20.000 krónur en 5. september hækkar miðaverð í 30.000 krónur. Miðar eru fáanlegir á heimasíðu ráðstefnunnar – http://youareincontrol.is/register-now

 

Sérstakt YAIC og Iceland Airwaves pakkatilboð

Í ár fer YAIC fram í sömu viku og Iceland Airwaves. Af því tilefni bjóða skipuleggjendur beggja viðburðanna upp á sérstakt pakkatilboð þar sem afmarkaður fjöldi miða á báða viðburði fást fyrir einungis 25.000 krónur. Þessa miða er einnig hægt að kaupa á heimasíðu You Are In Control: http://www.youareincontrol.is/register-now

 

Skipuleggjendur YAIC 2011

YAIC er samstarfsverkefni skapandi greina á Íslandi. Ráðstefnan er í eigu Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistarKvikmyndamiðstöðvar Íslands, Tónverkamiðstöðvar Íslands, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, Bókmenntasjóðs, Leiklistarsambands Íslands, Hönnunarmiðstöðvar og IGI (Icelandic Gaming Industry) en Íslandsstofa er helsti stuðningsaðili hennar.

 

María Rut Reynisdóttir er nýr ráðstefnustjóri YAIC. María hefur víðtæka reynslu af starfi innan skapandi greina en hún hefur m.a. starfað sem aðstoðarmaður Magnúsar Scheving í Latabæ, rekstrarstjóri Gallery 101, verkefnastjóri hjá Gogoyoko.com og Iceland Airwaves. Að auki fæst María við umboðsmennsku fyrir ýmsar hljómsveitir og kennir verkefnastjórnun við Listaháskóla Íslands.

Bryndís Hjálmarsdóttir er kynningarstjóri ráðstefnunnar en hún hefur nýlega lokið sameiginlegri gráðu í markaðsfræði og almannatengslum frá London Metropolitan University.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri ÚTÓN, hefur yfirumsjón með verkefninu.

______________________________________________________________

Frekari upplýsingar fást hjá ráðstefnustjóra:

Maria Rut Reynisdottir

YAIC | Ráðstefnustjóri
sími: 571 5660

farsími: 897 5357

skype: maria_rut_reynisdottir

Fylgstu með YAIC á: